Grindavíkurbær auglýsir 80% stöðu matráðs í Miðgarði, þjónustumiðstöð eldri borgara í Grindavík frá og með 1. október næstkomandi. Hlutverk matráðs er að hafa yfirumsjón með mötuneyti eldri borgara sem reiðir fram heitan mat í hádeginu alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Yfirumsjón með eldhúsi
Matseld og frágangur
Skipulag matseðla
Innkaup á matvörum og öðrum aðföngum
Menntun hæfni og reynsla:
Menntun á sviði matreiðslu er æskileg
Reynsla af matreiðslu innan stofnana eða fyrirtæki er æskileg
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Lipurð, jákvæðni og hæfni í samskiptum
Nákvæmni í vinnubrögðum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Stefanía Jónsdóttir í síma 426-8014 eða á netfanginu stefania@grindavik.is
Grindavíkurbær auglýsir 62,5% stöðu aðstoðarmatráðs í Miðgarði, þjónustumiðstöð eldri borgara í Grindavík frá og með 1. október næstkomandi. Hlutverk aðstoðarmatráðs er að aðstoða matráð í mötuneyti eldri borgara sem reiðir fram heitan mat í hádeginu alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Starfar í mötuneyti við matargerð og þrif
Vinnur sjálfstætt eftir fyrirmælum matráðs
Menntun hæfni og reynsla:
Þekkingu og reynslu af eldhússtörfum
Sjálfstæð vinnubrögð
Lipurð, jákvæðni og hæfni í samskiptum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Stefanía Jónsdóttir í síma 426-8014 eða á netfanginu stefania@grindavik.is.