Gangan í dag er farin í samvinnu við Grunnskóla Grindavíkur. Ganga fyrir alla aldurshópa þar sem við förum í leiðangur og ætlum að finna jurt sem Tyrkir eru sagðir hafa skilið eftir þegar þeir réðust til atlögu hér í Grindavík árið 1627. Saga jurtarinnar er forvitnileg og áhugavert að velta uppruna hennar og veru hér í Grindavík fyrir sér. Sagan segir að (blóð-)þyrnir hafi vaxið þar sem blóð heiðinna og kristinna blandaðist og að þar hafi síðan vaxið þyrnir. Sagan segir enn fremur að þyrnirinn vaxi aðeins á tveimur stöðum á landinu, í Grindavík og á Djúpavogi, þar sem Tyrkir stigu einnig á land og rændu fólki.
Þórunn Alda Gylfadóttir, kennari við Grunnskólann og formaður frístunda- og menningarnefndar leiðir gönguna og segir okkur frá ýmsu sem á leið okkar verður. Farið verður frá Kvikunni kl. 18:00.