Gangbrautarljósin við verslunarmiðstöðina eru biluð og er unnið að viðgerð. Ekki er vitað hvað hún mun taka langan tíma. Eru ökumenn beðnir um að fara að öllu með gát á meðan ljósin virka ekki og sýna gangandi og hjólandi vegfarendum bæði tillitssemi og athygli.