Tæplega 6 tonn af rusli voru hreinsuð úr fjörum á Suðurnesjum í hreinsunarátaki Bláa hersins, en verkefnið var unnið í samvinnu við Nettó og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Alls var farið í hreinsanir á sex stöðum sem íþróttafélög nýttu sem fjáröflun fyrir sína starfsemi.
Við Grindavík var svæðið í kringum Brimketil hreinsað í vor áður en útsýnispallurinn og bílastæðið voru formlega tekin í notkun. Voru það hópar frá sunddeild UMFG ásamt knattspyrnudeild sem sáu um hreinsunina.