Í litlu rauðu krúttlegu húsi niðri við sjóinn býr hún Þórdís, þó oftast kölluð Dísa. Húsið ber nafnið Akur og í garðinum er glæsilegt steinasafn sem Dísa hefur safnað á langri ævi, en Dísa er fædd árið á Reyðarfirði árið 1930. Það vill svo skemmtilega til að hreyfisalurinn á leikskólanum Laut heitir líka Akur. Dísa hafði heyrt af þessu og ákvað að bjóða nemendum Lautar í heimsókn.
Krakkarnir á Laut tóku heimboðinu að sjálfsögðu fagnandi og héldu í gær í heimsókn til hennar Dísu. Þar fengu þau að skoða alla steinadýrðina og við brottför færði Dísa þeim fallegan dropastein að gjöf, en steininn fann hún ofan við Stöðvarfjörð. Flestir steinarnir í safninu á Akri koma raunar frá Austfjörðum en Dísa og Petra, sem stofnaði Steinasafn Petru á Stöðvarfirði, voru góðar vinkonur.
Þeir sem hafa áhuga á að lesa meira um Akur, Dísu og steinasafnið, geta lesið umfjöllun okkar frá árinu 2014, þegar Dísa fékk umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar.
Dropasteinninn góði sem Laut fékk að gjöf