Tónlistarskólinn í Grindavík hefur tekið í notkun nýja kennsluaðferð sem nefnist Eftirfylgniaðferð. Aðferðin hefur þróast úr speglaðri kennslu. Inga Þórðardóttir skólastjóri Tónlistarskólans í Grindavík útfærði, aðlagaði og sneið aðferðina að tónlistarkennslu svo úr varð Eftirfylgniaðferðin.
Eftirfylgniaðferð verður kynnt foreldrum í sal tónlistarskólans þann 4. september. kl. 18:00.
Mikilvægt er að foreldrar mæti á kynninguna þar sem farið verður sérstaklega yfir svokallaðan ,,foreldra aðgang" á Showbie sem verður aðal samskiptaform kennara og foreldra í vetur.