Nú þegar vetrarstarfið rúllar af stað í Grindavík, skólar hefjast á ný og íþróttaæfingar eru smátt og smátt að komast í fastar skorður, fara einnig af stað námskeið hjá skólaskrifstofu Grindavíkurbæjar. Í vetur verður boðið upp á fjölbreytt námskeið, bæði fyrir foreldra og fagfólk.
Námskeiðin sem í boði í vetur eru:
- PMTO foreldranámskeið, hefst 7. september og verður á fimmtudögum í 8 vikur.
- PMTO grunnmenntun fyrir fólk sem starfar með börnum eins og t.d. kennara og leiðbeinendur í skólum. Hefst 19. - september, kennt í 4 lotum.
- Foreldranámskeið vegna kvíðinna barna, námskeið hafið, 6 skipti á 8 vikum.
- Almennt foreldranámskeið um uppeldi - færni til framtíðar. Fjögurra vikna námskeið í lok nóvember. Sjá nánar hér.
Einnig eru önnur námskeið á öðrum svæðum og stofnunum í boði fyrir fjölskyldur úr Grindavík. Við hvetjum fólk til að vera vakandi fyrir námskeiðum og fræðslu á öðrum stöðum sem henta þeim og þeirra börnum.