Vegagerðin hefur hafið vinnu á Grindavíkurvegi við sérstaka öryggisaðgerð. 20 milljónir hafa verið settar í verkefnið en þetta kemur fram í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Víkurfrétta. Þrír kaflar verða malbikaðir í sumar, tveir styttri og einn lengri við Seltjörn, en framkvæmdir hafa staðið yfir hér við innkomuna í bæinn síðustu tvo daga.
Til stendur að lagfæra öryggissvæði Grindavíkurvegar, sem hluta af sérstakri öryggisaðgerð. Í það verkefni hefur verið veitt 20 milljónum króna. Í því felst meðal annars að lagfæra hvassar brúnir sem eru við malbikskanta, hreinsa stórgrýti úr vegsvæði og lagfæra fláa við veginn.
Þrír kaflar á Grindavíkurvegi verða malbikaðir í sumar. Tveir stuttir og einn lengri upp af Seltjörn. Þá verður væntanlega eitthvað unnið við holuviðgerðir á veginum líka. Einnig verður kafli á Austurvegi í Grindavík malbikaður, frá tjaldstæðinu og að Hópsbraut. Einnig eru vegrifflur á miðjunni á Grindavíkurvegi, þannig að fræsa þarf nýja þar sem nýtt malbikslag verður sett.
Þetta kemur fram í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Víkurfrétta um malbikun á þjóðvegum á Suðurnesjum í sumar.