Vinnuskóli Codland 2017 - Fyrir 8. og 9. bekk

  • Fréttir
  • 26. júní 2017

Vinnuskóli Codland verður haldin í samstarfi við Vinnuskóla Grindavíkur 17.-20. júlí n.k.. Börn sem eru fædd á árunum 2002 og 2003 (8. og 9. bekkur) og hafa unnið í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar er gefinn kostur á sækja um. Þátttakendur fá greitt í samræmi við launatöflu Vinnuskólans. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Markmið
Codland vinnuskólinn hefur það að markmiði að kynna þátttakendum fyrir þeim fjölbreyttu tækifærum sem felast í sjávarútveginum og þau víðfeðmu áhrif sem hann hefur á okkar samfélag.

Dagskrá

Nemendur fá fræðslu um íslenskan sjávarútveg, fara í vettvangsferðir í fiskvinnslur og skip, fá starfskynningar, kynnast starfsemi frumkvöðla og vinna verkefni í nýsköpun.

Hvað er Codland?
Codland var stofnað árið 2012 og er í eigu Vísis hf. og Þorbjarnar hf. Markmið Codland er að stuðla að framþróun í sjávarútvegi með áherslu á fullnýtingu, þróun og samstarf. Codland hefur að leiðarljósi að hámarka nýtingu sjávarafurða og hvetja til umræðu og samstarfs sem skapar grundvöll til frekari þróunar og auknu verðmæti afurða.

Skráning stendur yfir á codland@codland.is - fyrir 14. júlí n.k.

Sjá frétt um Codland Vinnuskólann frá því í fyrra


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!