30 nemendur útskrifađir af Króki

  • Fréttir
  • 19. júní 2017

Útskrift Stjörnuhóps Heilsuleikskólans Króks var haldin þriðjudaginn 30. maí síðastliðinn. Að þessu sinni var hún haldin í Gjánni í íþróttahúsinu sem er nýbreytni hjá skólanum og voru 30 börn útskrifuð. Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri hélt ræðu og ávarpaði börnin og aðstandendur og síðan sungu börnin tvö lög. 

Þetta var hátíðleg stund og voru börnin til fyrirmyndar. Þau fengu útskriftarmöppurnar sínar afhentar ásamt Ljóðabók sem þau gerðu í vetur. Foreldrafélagið gaf hverju barni græðling, hópmynd og minniskubb með myndum af heimsóknum vetrarins. Eftir athöfnina var boðið upp á veitingar. Var mæting mjög góð og vill leikskólinn þakka öllum þeim sem áttu með þeim ánægjulega stund.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir