Fimm sjómenn voru í ár sæmdir heiðursmerki Sjómanna- og vélstjórafélagsins við hátíðlega athöfn sunnudaginn 11. júní, en allt frá árinu 1970 hefur Sjómannadagsráð Grindavíkur viðhaft þann sið að heiðra nokkra aldraða grindvíska sjómenn á sjómannadaginn. Þeir fimm einstaklingar sem hlutu heiðursmerki í ár voru þeir Arnbjörn Gunnarsson, skipsstjóri, Björgvin Vilmundarson, háseti, Guðmundur S. Haraldsson, skipsstjóri og vélstjóri, Jóhannes Jónsson skipstjóri og Jón Guðmundsson, matsveinn.
Vefsíða Grindavíkurbæjar óskar þessum heiðursmönnum til hamingju með viðurkenninguna og færir þeim um leið þakkir fyrir þeirra framlag til undirstöðuatvinnuvegs Grindavíkur.
Mynd af Facebook-síðu Grindavíkurbæjar