Þann 17. júní munu tónlistarkonurnar Sigríður María Eyþórsdóttir og Íris Kristinsdóttir stjórna tónlistarkeppni á sviðinu við íþróttahúsið. Um er að ræða útvíkkun á söngkeppninni góðu sem hefur verið fastur liður á 17. júní undanfarin ár, þar sem hægt verður að koma fram og gera margt fleira en bara syngja.
„Við vildum breyta til og sjá til þess að allt ungt fólk með tónlistarhæfileika fengi tækifæri til að spreyta sig í keppninni. Hingað til hefur keppnin eingöngu verið söngkeppni, en við eigum svo mikið af frábæru ungu tónlistarfólki sem á framtíðina fyrir sér og mikilvægt að bæjarbúar fái líka að njóta þeirra hæfileika. Við munum veita verðlaun í flokkunum besti söngvarinn, besti hljóðfæraleikarinn og besta framkoman. Við hvetjum alla sem langar að taka þátt að hafa samband við okkur." - Sögðu þær Íris og Sigríður María í viðtal við vefsíðu Grindavíkurbæjar.
Skráning fer fram hjá Sigríði Maríu og veitir hún einnig allar nauðsynlegar upplýsingar í síma: 898-4849.
Við hvetjum allt ungt og upprennandi tónlistarfólk, einstaklinga og hópa til að skrá sig og atriði sín. Í þessari viku stendur einnig yfir söngskóli undir leiðsögn Emilíu Bjargar Óskarsdóttur og eru ennþá nokkur laus pláss fyrir áhugasama krakka.