Þá er komið að lokadegi Sjóarans síkáta, sjálfum sjómannadeginum! Það er nóg um að vera í dag eins og undanfarna daga. Dagskráin byrjar á bryggjunni kl. 13:00 með aflraunum, en hátíðardagskrá Sjómanna- og vélstjórafélagsins byrjar kl. 14:00 við Kvikuna. Dagskrá dagsins í heild sinni er hér að neðan:
08:00 Fánar dregnir að húni og bæjarbúar hvattir til að flagga
10:00-12:00 Hjólareiðamót Sjóarinn síkáti unglina criterium: Keppnin fer fram á lokaðri braut á hátíðarsvæðinu. Keppt í fjórum flokkum, 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára og 16-18 ára. Keppnisgjald er 1.500 kr.
10:00-19:00 Opnunartími Sundlaugar Grindavíkur
10:00-17:00 Kvikan KYNJAVERUR Guðmundar Garðarssonar heimsækja Grindvíkinga og bíða gesta á efri hæð Kvikunnar.
10:00-17:00 Kvikan SAMFÉLAGIÐ OKKAR, ný sýning á efri hæð Kvikunnar þar sem gamlar ljósmyndir segja frá atvinnuháttum og mannlífinu í Grindavík.
13:00-17:00 Í Kvikunni verður til sölu kaffi, heitt kakó og vöfflur sem 7. og 8. flokkur kvenna í körfubolta sjá um. Þær eru að safna fyrir æfingaferð.
13:00-18:00 Leiktæki frá Sprell á hafnarsvæðinu fyrir krakka á öllum aldri
13:00 Sjómannadagsmessa í Grindavíkurkirkju
Ræðumaður verður Kristján Ásgeirsson sjómaður. Ritningarlestra lesa Rakel Lind Hrafnsdóttir og Arnar Már Frímannsson. Katrín Júlía Arnarsdóttir verður kransaberi og ber kransinn niður að minnisvarðanum Von. Karlakór Keflavíkur leiðir sönginn og sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
14:00 Hátíðahöld við Kvikuna í tilefni Sjómannadagsins
Ávarp flytur Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Kynnir: Fannar Jónasson, bæjarstjóri. Heiðursviðurkenningar og verðlaunaafhending fyrir kappróður. Vox Felix kórinn syngur nokkur lög
13:00-16:00 Andlitsmálun við Kvikuna. Ókeypis fyrir öll börn.
13:00-18:00 Fiskasafn bryggjukantinum. Sjóarinn síkáti í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun í Grindavík og sjávarútvegsfyrirtæki setja upp fiskabúr af ýmsum stærðum þar sem verður að finna marga af þeim helstu nytjafiskum sem veiðast við Ísland. Á staðnum verða meðal annars snertibúr með kröbbum, krossfiskum og ígulkerjum sem spennandi er fyrir börnin að skoða og handfjatla. Einnig verða furðufiskar sem veiðst hafa á grindvískum bátum til sýnis í fiskikörum.
13:00-22:00 „Paintball" og „Lasertag" á Landsbankatúninu. Aðgangseyrir
13:00-17:00 Skemmtidagskrá á hátíðarsviði
• Sterkasti maður í heimi. Stærsta keppnin til þessa. Keppt í 4 greinum báða dagana. Fyrsta og síðasta grein dagsins verða við hátíðarsviðið, hinar við löndunarkantinn eða á götunni. Mylluganga, drumablyfta, uxaganga og trukkadráttur.
• Bjarni töframaður
• Skoppa og Skrítla
• Íþróttaálfurinn, Solla stirða og Halla hrekkjusvín
• Sirkus Íslands
14:15-15:00 Víðihlíð - söngskemmtun fyrir eldri borgara
Karlakór Keflavíkur syngur nokkur lög. Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson fylgja svo í kjölfarið.
15:00 Flekahlaup - koddaslagur - kararóður. Pizzaverðlaun í boði. Skráning á staðnum.
15:00-17:00 Hestateyming við Kvikuna. Börnum gefst tækifæri á að fara á hestbak.
16:00-17:00 Grindjánar bifhjólaklúbbur við Fiskmarkaðinn. Ókeypis krakkakeyrsla. Börn fá að sitja aftan á bifhjólum og fara hring. Mömmur fá að fara rúnt á eftir.
17:00 Rokktónleikar í íþróttahúsinu. Grindvíkingar og gestir á frábærum rokktónleikum. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
20:00 Sjómannastofan Vör - Hátíðarkvöldverður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur. Borðapantanir í síma 426-8570 meðan húsrúm leyfir. Guðni Ágústsson og Jóhannes eftirherma sjá um veislustjórn og skemmtun. Jón á Sjómannastofunni sér um matinn af sinni alkunnu snilld