Ástralski gítarleikarinn Tim McMillan er mættur aftur til Íslands og ætlar að halda nokkra tónleika ásamt fiðluleikaranum Rachel Snow og hinum eina sanna Svavari Knúti. Þríeykið byrjar tónleikaröðina hér í Grindavík, en þau ætla að stíga á stokk á Bryggjunni annað kvöld kl. 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Á Facebook-síðu Tim má heyra ýmis tóndæmi, bæði gömul og ný.