Mið- og unglingastigin fóru í ratleiki á þriðjudaginn í blíðskapar veðri. Allt gekk vel og nemendur þeyttust út um allan bæ í leit að vísbendingum um stöðvar þar sem þau þurftu annaðhvort að svara spurningum eða leysa þrautir. Á eftir var svo grillað. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá voru allir kátir og hressir. Á Facebook síðu skólans eru svo fleiri myndir.