Undanfarið hefur 8. bekkur verið að vinna ljósmyndaverkefni í náttúrufræðitímum. Hver nemandi átti að taka myndir 3 myndir og átti ein mynd að sýna liti, önnur skugga og sú þriðja ljós. Vigdís Heiðrún Viggósdóttir,
ljósmyndari og bókavörður á bókasafninu skoðaði myndirnar og valdi bestu mynd í hverjum flokki. Myndirnar eru til sýnis á veggnum fyrir framan náttúrufræðistofuna.