Mugison á Fish house - Bar & Grill 20. maí

  • Menningarfréttir
  • 10. maí 2017

Mugison ásamt hljómsveit mun halda tónleika á Fish House - Bar & grill, laugardaginn 20. maí næstkomandi. Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu - allt lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er forsala aðgöngumiða á tix.is

Um tónleikana af tix.is:

Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy! fyrir síðustu jól. Það var mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur, Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið uppá því að radda einsog englakór í fallegu lögunum - og Addi og Guðni halda ballestinni einsog sannir skriðdrekar. 

Þetta er einstakt tækifæri til þess að upplifa tónlist sem spannar allan tilfinningaskalann. Ekki missa af þessu!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir