Félagsmiðstöðin Þruman mun standa fyrir útvarpsútsendingum dagana fyrir Sjóarann Síkáta, 5.-9. júní frá kl. 10:00-22:00. Hver þáttur er 1 klukkustund. Allir sem eru 16 ára og eldri geta sótt um að vera með útvarpsþátt.
Ef þú hefur áhuga á að vera með útvarpsþátt þá skaltu senda hugmynd/handrit af þætti á johannao@grindavik.is eða setna@grindavik.is
Þetta er tilvalið tækifæra fyrir hverfin til að peppa sína liðsmenn og fyrir okkur Grindvíkinga að skapa skemmtilega stemningu fyrir Sjóarann Síkáta.
Við hvetjum alla Grindvíkinga til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni nemenda- og Þrumuráðs og ungmennaráðs Grindavíkur.