Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta er á fullu skriði. Hátíðin er haldin hátíðleg dagana 09.-11. júní. Að venju hefjast einhverjir viðburðir fyrr en aðaldagskráin verður þessa helgi. Þeir sem standa fyrir viðburðum og vilja koma þeim inn í dagskrána þurfa að senda upplýsingar á siggeir@grindavik.is í seinasta lagi á hádegi föstudaginn 12. maí.
Þjónustuaðilar sem vilja auglýsa viðburði eins og böll o.fl. í dagskrá Sjóarans síkáta, sem dreifð verður í 30 þúsund eintökum á suðvestur horninu, þurfa að skila upplýsingum í síðasta lagi 08. maí n.k. Verð 20.000 kr. (lógó innifalið). Einnig er hægt er að kaupa stærri auglýsingar en þá þarf að semja um það sérstaklega.
Tilkynningar sendist á siggeir@grindavik.is
Allar nánari upplýsingar á www.sjoarinnsikati.is og www.grindavik.is