Mánudaginn 1. maí kl. 11:00 verður sannkölluð fjölskylduhátíð í Grindavíkurkirkju. Þrjár skemmtilegar ævintýrapersónur ætla að kíkja í heimsókn, syngja, sprella og segja sögur af sér og vinum sínum úr ævintýraskóginum. Þetta verður fjölskyldustund þar sem barnastarf kirkjunnar þennan veturinn endar með skemmtilegri leiksýningu. Pylsur handa öllum og djús eftir stundina. Hoppukastali verður á kirkjulóðinni fyrir börnin.
Verkalýðsfélag Grindavíkur styrkir sýninguna.
Allir velkomnir, sjáumst hress og kát!