Fulltrúar allra sveitarstjórnarflokka í Grindavík hafa sammælst um að fresta bæjarmálafundum, sem alla jafna eru á dagskrá daginn fyrir bæjarstjórnarfund, þar sem Grindavík mætir KR í kvöld í úrslitaviðureign Domino's deildar karla. Eru Grindvíkingar hvattir til þess að nýta sér fundarfríið og fjölmenna á leikinn og styðja strákana okkar.