Páskagöngu Bláa lónsins og Grindavíkurbæjar, sem fara átti fram annan í páskum, var frestað vegna veðurs. Ný dagsetning er laugardagurinn 29. apríl. Allar nánari upplýsingar um gönguna má lesa hér að neðan:
Laugardaginn 29. apríl verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins. Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa lónsins og er áætlað að hún taki rúmlega 3 klukkustundir. Hægt er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Gangan er í boði Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar og enginn þátttökukostnaður er í gönguna.
Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með
Skipstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að
kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind.
Þátttakendum í göngunni sem hafa hug á að fara í Bláa Lónið að göngu lokinni er vinsamlegast bent á að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa Lónsins. Góður skófatnaður er æskilegur og gott er að taka með sér smá nesti. Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Sigrún Franklín verður leiðsögumaður í göngu.