Þann 13. febrúar fór af stað tilraunaverkefni í Víðihlíð en þar er nú starfrækt mötuneyti á 2. hæð fyrir eldri borgara bæjarins. Um þriggja mánaða verkefni er að ræða til þess að kanna þörf og eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Heitur matur er á borð borinn kl. 11:30 alla virka daga og birtist matseðill vikunnar á heimasíðunni bæjarins. Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á föstudegi í vikunni áður. Hægt er að panta í síma 426-8014 (Miðgarður) eða 420-1100 (bæjarskrifstofur).
Óhætt er að segja að þessi þjónusta hafi farið vel af stað og mælist vel fyrir hjá eldri borgurum bæjarins. Daglega mæta um 35-40 í mat og margir mæta alla daga vikunnar. Að fá góðan heitan mat í eldaðan fyrir sig í hádeginu er vissulega góð þjónusta sem sumir sækja jafnvel af nauðsyn en félagslegi þátturinn skiptir ekki síður máli. Þarna fá gamlir kunningjar tækifæri til að hittast og spjalla og eru oft líflegar umræður yfir kaffibollunum að máltíð lokinni.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á dögunum þegar bæjarfulltrúar og bæjarstjóri mættu í matinn til þess að kanna gæði þjónustunnar og auðvitað til að blanda geði við aðra matargesti. Ekki er hægt að segja annað en matnum hafi verið gerð góð skil enda er kokkurinn hann Sigurgeir Sigurgeirsson eldri en tvævetur í þessum bransa.
Feðginin Ásrún og Diddi voru ánægð með matinn.
Heimsmálin voru rædd í þaula á þessu borði.
Ágústa hrósar kokknum.
Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar gæddu sér á snitzeli og ræddu málin við aðra matargesti. Rósa hefur eflaust haft frá mörgu að segja.
Þessi grein birtist upprunalega í 1. tbl. Járngerðar 2017