Laus er til umsóknar 36 fm einstaklingsíbúð á 2. hæð Víðihlíð. Forsenda þess að geta sótt um íbúðina er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði:
a. Umsækjendur um íbúðir skulu hafa náð 72 ára aldri.
b. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu í 12 mánuði.
c. Umsækjandi sé í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.
Heimilt er að veita undanþágur frá ofangreindum skilyrðum við ákveðnar aðstæður samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar sem nálgast má í heild sinni hér.
Verð íbúðarréttar er kr. 2.438.085,- og mánaðarleg leigugreiðsla er kr. 91.450,-. Ef umsækjandi á ekki handbæra þá fjárhæð sem nemur íbúðarréttinum getur hann sótt um undanþágu til bæjarráðs frá greiðslu íbúðarréttarins. Ef undanþága er veitt af greiðslu íbúðarréttar að hluta eða öllu leyti greiðir leigutaki hærri leigu.
Frestur til að leggja inn umsókn er tvær vikur eða til og með 24. apríl nk. Félagsmálanefnd Grindavíkur úthlutar íbúðinni á grundvelli mats á þörfum umsækjenda og er m.a. horft til andlegra, líkamlegra, fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjenda, auk húsnæðisaðstæðna.
Til að leggja fram umsókn um íbúðina þá smelltu hér.