Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í Grunnskóla Grindavíkur. Um leið og ég nota tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra páska vil ég minna á að samkvæmt skóladagatali hefst skólastarf að nýju með nemendum mánudaginn 24. apríl.
Starfsfólk Grunnskóla Grindavíkur heldur eftir páska í náms- og kynnisferð til Toronto í Kanada. Í ferðinni mun hópurinn heimsækja 11 skóla og kynna sér starfsemi þeirra. Auk heimsóknanna verður einn dagur tileinkaður útikennslu. En þá mun hópurinn heimsækja eina af tíu útikennslumiðstöðvum Torontoborgar og fá þar fræðslu um hvernig kennarar í Toronto vinna með náttúruna í kennslunni. Nánari upplýsingar um útikennslusvæðið er að finna á eftirfarandi slóð http://schoolweb.tdsb.on.ca/forestvalley/home.aspx .
Hér á eftir er listi yfir skólana sem verða heimsóttir í ferðinni og slóðir þar sem er að finna upplýsingar um skólana.
Pauline Jr Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5263
Perth Anenue Jr Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5264
Queen Victoria Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5267
Sprucecourt Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5278
Church Street Junior Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5210
Central Technical School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5610
Claude Watson School of the Arts, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=3241
Faywood Arts-Based Curriculum School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=3118
Dunlace Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=3104
Hillcrest Public School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=5232
Downsview Secondary School, http://www.tdsb.on.ca/FindYour/Schools.aspx?schno=3420
Einnig vil ég minna á að þriðjudaginn 25. apríl verða teknar bekkjarmyndir af 1., 4., 7. og 10. bekkjum.
Kær kveðja
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri