Vegna framkvæmda við losunarsvæði garðaúrgangs við móttökustöð Kölku við Nesveg er svæðið lokað og ekki tekið á móti garðaúrgangi í augnablikinu. Margir Grindvíkingar eru þó byrjaðir á vorverkunum og þurfa að losna við trjágreinar og því hefur Grindavíkurbær sett upp gám við þjónustumiðstöðina á Hafnargötu 24 þar sem hægt er að losa sig við trjágreinar og tré.