Grindavíkurbær auglýsir sumarstörf í Kviku, tjaldsvæði, íþróttamiðstöð, Vinnuskóla (flokksstjórar) og fyrir leiðbeinendur á leikjanámskeiðum. Lesa má nánar um störfin hér að neðan. Sækja skal um störfin á www.grindavik.is/atvinna
Umsóknarfrestur starfanna er til 31. mars n.k. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á ráðningatímabilinu.
Starfsmaður í íþróttamiðstöð
Grindavíkurbær óskar eftir að ráða kvenkyns sumarstarfsmann (júní, júlí og ágúst) til afleysinga í sundlauginni. Unnið er á vöktum. Um er ræða í 100% starf við gæslu, afgreiðslu og þrif.
- Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri
- Umsækjandi þarf að hafa þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða, svo sem að taka sundpróf, samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum, umsækjandi þarf einnig að hafa góða færni í mannlegum samskiptum.
- Umsækjendur þurfa að vera með hreint sakavottorð.
Íþróttamiðstöðin er vímuefnalaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður í síma 660-7304
Starfmaður í Kvikuna
Grindavíkurbær og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsmanni til að starfa í Kvikunni vor og sumar 2017.
Vinnutími er frá 10:00 - 17:00 alla virka daga. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.
Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur:
- ríka þjónustulund
- góða tungumálakunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál skilyrði)
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og hafa frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Einarsdóttir sviðsstjóri í síma 420 1100, netfang: bjorg@grindavik.is
Starfsmenn á tjaldsvæði
Grindavíkurbær og og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsfólki til að starfa á tjaldsvæði Grindavíkurbæjar sumarið 2017. Starfstímabilið er frá 8. maí til
31. ágúst, með möguleika á aukavöktum í september og október. Ráðnir verða þrír starfsmenn sem ganga munu vaktir á þessum tveimur starfsstöðvum. Á tjaldsvæðinu á virkum dögum og í Kvikunni um helgar.
Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.
Leitað er að einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa:
- ríka þjónustulund
- góða tungumálakunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál skilyrði)
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Einarsdóttir sviðsstjóri í síma 420 1100, netfang: bjorg@grindavik.is
Flokksstjórar við Vinnuskóla Grindavíkur
Vinnuskóli Grindavíkur auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2017. Um 100% starf er að ræða. Einnig eru vaktir á Sjóaranum síkáta. Starfstímabil er frá 16. maí til 12. ágúst. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.
Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund, góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartifinningu og síðast en ekki en síst ánægju af því að vinna með og leiðbeina unglingum.
Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og
tækjum.
VINNUSKÓLI GRINDAVÍKURBÆJAR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Einarsdóttir sviðsstjóri í síma 420 1100, netfang: bjorg@grindavik.is
Leiðbeinendur við leikjanámskeið Grindavíkurbæjar
Grindavíkurbær auglýsir eftir leiðbeinendum í 100% starf til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2017. Starfstímabilið er frá 5. júní til 27. júlí um það bil. (Einnig hægt að byrja fyrr og enda síðar, sami vinnutími og flokksstjórar). Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.
Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum.
Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við sviðssstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.