Forkynning: skipulag miđbćjarsvćđis Grindavíkur

  • Fréttir
  • 24. mars 2017

Á fundi skipulagsnefndar 23. mars 2017 var samþykkt að forkynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi og var tilaga að deiliskipuagi samþykkt til auglýsingar 20. febrúar sl.

 

Eftirfarandi tillögur eru forkynntar:

Tillaga að aðalskipulagsbreytingu ásamt umhverfisskýrslu vegna miðbæjar Grindavíkur skv. 2.mgr. 30. gr. skipulagslaga.Tilaga að nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu vegna miðbæjar Grindavíkur skv. 2.mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Aðalskipulagsbreytingin og tilaga að deiliskipulagi gera ráð fyrir þéttingu byggðar á svæðinu, bæði íbúðahúsnæði og þjónustu- og verslunarhúsnæði eins og gert er ráð fyrir í kafla 4.7.1. í greinargerð gildandi aðalskipulags. Legu gatna er breytt þar sem tengibrautirnar Víkurbraut, Ránargata og Austurvegur mætast til að flæði milli miðbæjar og hafnarsvæðis verði betra.Tillagan er sett fram á uppdrætti greinargerð og umhverfisskýrslu.

Forkynningarfundur verður haldinn 27. mars nk. frá kl 16-17 á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 og eru allir velkomnir. Hægt er að skoða tillögurnar hér að neðan.

Deiliskipulag miðbæjar - Greinagerð
Breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 
Miðbær Grindavíkur - Deiliskipulagsuppdráttur
Miðbær Grindavíkur - Skýringaruppdráttur

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir