Í dag er næst síðasti dagur Menningarviku 2017. Dagskráin er þéttskipuð líkt og aðra daga en þessa stundina er handverksmarkaður í gangi í Gjánni og í kvöld verður svo Grindavíkurkvöld á Fish house - Bar & Grill
09:00-16:00 Sundlaug - ókeypis í sund
10:00-12:00 Kvikan, Jógaflæði með Rósu og Ágústu. Hugleiðsla, Shake your Soul - dansjóga, Gong slökun. Verð 3.500 kr.
10:00-18:00 Verslunarmiðstöð, Heilsuleikskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og Grunnskóli Grindavíkur sýna verk nemenda sinna
11:00-17:00 Kvikan, Saltfisksýning opin gestum. Allir velkomnir á opnunartíma
12:00-21:00 Salthúsið sýning á verkum Helgu Kristjánsdóttur, bæjarlistamanns Grindavíkur
13:00-15:00 Hópsskóli, Listasmiðja barna í Menningarviku 2017
13:00-18:00 Gjáin, Handverkshátíð í Grindavík. Þátttakendur skrá sig á bjorg@grindavik.is fyrir 16. mars. Aðgangur ókeypis
14:00-14:50 Íþróttahús, Sundlaug, Aqua-sumba frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa, ókeypis aðgangur
14:00-16:00 Greip - opnar vinnustofur Skólabraut 8
14:00-17:00 Framsóknarhúsið, MÆÐGUR SÝNA VERK SÍN. Ljósmyndaverkið LEYST ÚR LÆÐINGI eftir Vigdísi Heiðrúnu Viggósdóttur og tvær seríur eftir dóttur hennar Arís Evu Vilhjálmsdóttur, Víkurbraut 27
22:00 Grindavíkurtrúbbar á Fish house - Bar & Grill