Hvernig væri að byrja daginn á því að skella sér í sund alveg ókeypis? Nú eða skella sér í Zúmba eða kíkja á listasýningu? Margt spennandi á dagskrá Menningarviku í dag.
06:00-21:00 Sundlaug - ókeypis í sund
08:00 Morgunsöngur í Hópsskóla. Hvetjum gesti og gangandi til að líta við og syngja með
08:00-18:00 Bókasafn, sýning á textílverkum og ljósmyndum eftir Sigríði Birnu Matthíasdóttur og Mónu Leu Óttarsdóttur. Sýning á skarti eftir hönnuði tengda Grindavík
10:00-18:00 Verslunarmiðstöð, Heilsuleikskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og Grunnskóli Grindavíkur sýna verk nemenda sinna
11:30-13:00 Víðihlíð Fiskihlaðborð í boði fyrir eldri borgara, skemmtiatriði í boði
11:00-17:00 Kvikan, Saltfisksýning opin gestum. Allir velkomnir á opnunartíma
12:00-21:00 Salthúsið sýning á verkum Helgu Kristjánsdóttur, bæjarlistamanns Grindavíkur
13:00 Víðihlíð, erindi Gunnlaugs A. Jónssonar Af Grindavíkurárum Sigvalda S. Kaldalóns (1881-1946) læknis og tónskálds og menningarlegum áhrifum hans
14:00-16:00 Greip - opnar vinnustofur Skólabraut 8
15:00-22:00 Útvarp Þrumunnar tíðni auglýst síðar en útvarpið verður einnig aðgengilegt í tölvum og símum í gegnum app
16:00-19:00 Framsóknarhúsið, MÆÐGUR SÝNA VERK SÍN. Ljósmyndaverkið LEYST ÚR LÆÐINGI eftir Vigdísi Heiðrúnu Viggósdóttur og tvær seríur eftir dóttur hennar Arís Evu Vilhjálmsdóttur, Víkurbraut 27
17:00-17:40 Nettó, Nemendur Tónlistarskólans í Grindavík spila fyrir gesti og gangandi í Nettó
17:00-17:50 Kvennó, Zumba®-Gold í Kvennó með Jeanetta. Aðgangur ókeypis
19:00 Sundlaugin, Sundlaugabíó í boði Þrumunnar - Frestað vegna veðurs
21:00 Bryggjan, KRÓNÍKA - Sagnakvöld með Guðna Ágústssyni og Jóhannesi Kristjánssyni