Forsala hafin á tónleika Valdimars

  • Menningarfréttir
  • 14. mars 2017

Fimmtudaginn 16. mars verða þeir Valdimar og Örn Eldjárn með tónleika á Fish house - Bar & grill. Forsala miða er hafin á Fish house en aðgangseyrir er 2.500 kr. Kári tekur vel á móti ykkur frá 12:00 til 22:00.

Um tónleikana:

Einn ástsælasti söngvari landsins, Valdimar Guðmundsson verður með tónleika á Fish House Bar & Grill, fimmtudaginn 16. mars klukkan 21:30. Með honum er Örn Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld sem spilar á gítar á tónleikunum en hann á ættir að rekja norður til Svarfaðardals. Valdimar er Suðurnesjamönnum að góðu kunnur en á tónleikunum syngur ljúflingurinn Valdimar öll sín fallegu og vinsælu lög fyrir gesti FISH-HOUSE. Aðgangseyrir er 2.500 kr og eru seldir við innganginn og í forsölu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir