Nemendafulltrúaráðið Stuðboltar fundar reglulega. Guðrún Inga Bragadóttir náms- og starfsráðgjafi skólans fundar með yngri og eldri nemendum. Meginmarkmið er að auka nemendalýðræði og gefa nemendum möguleika á að vera virkir i að taka ákvarðanir sem snerta skólastarfið.
Bekkjarfundir sem haldnir eru af umsjónarkennurum með bekkjum sínum er ætlað að gefa tóninn fyrir fundi Stuðboltanna. Þar á að taka ákveðin málefni fyrir sem virka áhugaverð fyrir nemendur og verða þeim vonandi hvatning til að gera betur ef þess þarf. Á bekkjarfundum er lagt upp með að ræða um ólíkar leiðir t.d. í samskiptum á skólalóðinni og leita lausna eins og hægt er.
Nánar má lesa um bekkjarfundi á eftirfarandi slóð:
http://www.grindavik.is/v/17908
Stuðboltar 1.-3. bekkjar ásamt Guðrúnu Ingu Bragadóttur sem stýrir fundunum þeirra.