Knattspyrnunámskeiđ helgina 17. - 19. febrúar

  • Knattspyrna
  • 3. febrúar 2017

Með stolti kynnum við til sögunnar knattspyrnuskóla knattspyrnudeildar UMFG 2017 fyrir 5.- 3. flokk stráka og stelpna. Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum. Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fá góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun.

Boðið verður upp á úrvals dagskrá sem inniheldur m.a.

Æfingar - fyrirlestra - mat - sund - diskó og fleira.

Gisting í boði fyrir þátttakendur í 4. flokki og 3. flokki í Hópsskóla.

Verð fyrir þessa þrjá daga er 10.000 kr.

Gestakennarar og fyrirlesarar:

Heimir Hallgrímsson þjálfar A-landsliðs karla - Þorlákur Árnason þjálfari U17 landsliðs karla - Þórður Þórðarson þjálfari U19 landsliðs kvenna - Ásgerður Stefanía Baldursdóttir leikmaður og fyrirliði Stjörnunnar - Bentína Frímannsdóttir leikmaður Grindavíkur - Eysteinn Húni Hauksson þjálfari í Keflavík - Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl kk í Grindavík - Róbert Haraldsson þjálfari m.fl kvk í Grindavík - Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur - Þorsteinn Magnússon markmannsþjálfari - Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík - Milan Stefán Jankovic þjálfari hjá Grindavík - Óli Baldur Bjarnason heilsunuddari og styrktarþjálfari Grindavíkur - Klemenz Sæmundsson næringarfræðingur - Sigurvin Ingi Árnason sjúkraþjálfari og margir fleiri.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netföngin aegir@umfg.is eða olistefan@umfg.is fyrir 13.febrúar.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!