Grindvíkingur ársins 2016 er Margrét S.Sigurðardóttir, fyrrum forstöðukona bókasafns Grunnskóla Grindavíkur og núverandi sjálfboðaliði við sama skóla. Undanfarin ár hefur Margrét verið óþreytandi í sjálfboðaliðastarfi við skólann þar sem hún aðstoðar nemendur við lestur og heimanám, bæði á skólatíma og eftir að honum lýkur þegar þannig stendur á.
Þó svo að Margrét sé sjálfboðaliði í skólanum gætu margir haldið að hún væri þar ennþá meðal starfsmanna, en hún er á svæðinu flesta daga. Á hverju hausti sest hún niður með deildarstjóra og setur saman stundatöflu fyrir sig og mætir svo í skólann og aðstoðar nemendur fyrst og fremst við lestur. Eflaust eru ófáir að lesa þetta núna sem einmitt hafa notið aðstoðar Margrétar í gegnum tíðina. Þá er Margrét alltaf boðin og búin að taka þátt í ýmsum tilfallandi verkefnum við skólann og er hennar framlag til skólamála í Grindavík í raun ómetanlegt.
Margar góðar tilnefningar bárust valnefndinni í ár en var nefndin á einu máli um að Margrét stæði uppúr og væri vel að þessari viðurkenningu komin. Um leið viljum við vekja athygli á því mikla og góða starfi sem sjálfboðaliðar í Grindavík vinna. Má þar nefna Björgunarsveitina, Kvenfélagið, Lionsklúbbinn, Rauða krossinn, Slysavarnardeildina, Ungmennafélagið sem og fjölmarga einstaklinga sem vinna mikið og óeigingjarnt starf í þágu bæjarfélagsins okkar.
Án þessara sjálfboðaliða værum við miklu fátækari sem samfélag, bæði andlega og veraldlega og fyrir það færum við Margréti og öðrum grindvískum sjálfboðaliðum okkar bestu þakkir og óskum henni innilega til hamingju með titilinn Grindavíkur ársins 2016!