Föstudaginn 30. desember verður sannkallað áramóta-opið svið á Bryggjunni. Að vanda ætla þeir Halldór Lárusson trommuleikari, Ólafur Þór Ólafsson gítarleikari og Þorgils Björgvinsson alltmöguleikari að leika allt mögulegt og ómögulegt og er gestum velkomið að taka þátt, syngja, leika, dansa, spjalla og leysa lífsins vanda. Gleðin hefst kl. 21:00 og eins og alltaf á Bryggjunni er frítt inn og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.