Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann í þjónustumiðstöð bæjarins. Leitað er að metnaðarfullum og traustum einstaklingi, sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Um 50% starf er að ræða.
Verksvið og ábyrgð
• Minniháttar viðhaldi á smávélum.
• Minniháttar viðhald á bílum þjónustumiðstöðvar. t.d. olíuskipti o.fl.
• Minniháttar viðhald á vatns- og fráveitu.
• Ýmis viðhaldsvinna innan stofnana bæjarins.
• Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, viðhald á opnum svæðum, snjómokstur o.fl.
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla frá sambærilegum verkefnum sem nýst getur í starfi.
• Þekking og reynsla af því að vinna með vélar og að viðhalda þeim.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Bílpróf og vinnuvélaréttindi.
• Meirapróf/fólksflutninga 10 farþega eða gamla ökuskírteinið - ökuskírteini sem voru í gildi 1. mars 1988
• Rík þjónustulund við íbúa bæjarins.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsækjandi þarf að vera reiðubúinn að ganga bakvaktir skv. bakvaktarkerfi þjónustumiðstöðvar.
Umsækjandi þarf að vera með hreint sakavottorð og skila því inn þegar þess er óskað.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Umsóknareyðublöð fyrir starfið má nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar - www.grindavik.is/atvinna
Senda skal umsóknir til Sigmars B. Árnasonar byggingafulltrúa á bygg@grindavik.is, skila í afgreiðslu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, eða senda á póstfangið:
Grindavíkurbær
„Starfsmaður í þjónustumiðstöð"
Víkurbraut 62
240 Grindavík
Umsóknarfrestur er til og með 26. desember nk. Nánari upplýsingar veitir byggingafulltrúi í síma 420 1109.