Tríóið Hot Eskimos verður með tónleika á Bryggjunni föstudaginn 4. nóvember kl. 21:00. Hljómsveitina skipa þeir Karl Olgeirsson á píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur. Efnisskrá tónleikanna samanstendur af popp-, rokk- og pönklögum í jazzútgáfum.
Allir velkomnir með húsrúm leyfir.
Tríóið hefur gefið út tvo geisladiska; Songs from the top of the world (2011) og We Ride Polar Bears (2015) og munu þeir leika lög af þeim í bland við nýtt efni. Frábær píanójazz með lögum eftir Jónsa, Of Monsters and Men, Björk, Bubba, Megas, Emiliönu Torrini, Paul McCartney, Magga Eiríks ofl.
Aðgangur er ókeypis.