Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Kosið verður í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga frá 9-13.
Dagana 24.-28. október frá kl. 8:30 til 18:00.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar