70. fundur Félagsmálanefndar haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, fimmtudaginn 8. september 2016 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Birgitta H. Ramsay Káradóttir aðalmaður, Laufey Sæunn Birgisdóttir aðalmaður, Pétur Rúðrik Guðmundsson formaður, Valgerður Jennýjardóttir aðalmaður og Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1501040 - Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks
Stefanía Sigr. Jónsdóttir og Hlín Sigurþórsdóttir sitja fundinn undir þessum lið. Rædd er stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks á Suðurnesjum. Fyrir liggur að fagteymi á vegum þjónustusvæðisins er að vinna að stefnumótun á svæðinu. Félagsmálanefnd leggur til að samstarf í óbreyttu formi árið 2017 en felur sviðsstjóra að kanna fýsileika þess að reka þjónustuúrræði í heimabyggð frá og með árinu 2018.
2. 1609031 - Félagslegar íbúðir
3. 1608004 - Trúnaðarmál
4. 1608132 - Trúnaðarmál
5. 1606075 - Umsókn um að gerast dagforeldri
Sótt er um undanþágu frá námskeiðsskyldu á grundvelli reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsi. Félagsmálanefnd samþykkir undanþáguna og veitir leyfi í ár í stað sex mánaða.
6. 1603073 - Umsókn um að gerast dagforeldri
Sótt er um undanþágu frá námskeiðsskyldu á grundvelli reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsi. Félagsmálanefnd samþykkir undanþáguna og veitir leyfi í ár í stað sex mánaða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30.