22. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 19. október 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Guðjón Gíslason formaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir aðalmaður, Ólafur Már Guðmundsson aðalmaður, Pétur Már Benediktsson varamaður og Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. 1609088 - Tálkni ehf. Umsókn um lóð nr. 2 iðnaðarsvæði i5
Erindi frá Tálkna ehf, kennitala 551209-1990. Í erindinu er óskað eftir lóð nr.2 á iðnaðarsvæði I5 fyrir uppbyggingu á eldisrýmis sem er a.m.k. 70.000 m3 ásamt sláturaðstöðu. Skipulagsnefnd bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er í b-flokki framkvæmda skv. lögum um umhverfismat framkvæmda nr. 106/2000. Verði ákveðið að úthluta lóð undir starfsemina þarf að liggja fyrir staðfest deiliskipulag fyrir svæðið og mögulega umhverfismat. Málinu vísað til bæjarráðs.
2. 1609089 - Umsókn um byggingarleyfi: Sólskáli við Norðurhóp 13
Erindi frá Erninum GK 293 ehf. Í erindinu er óskað eftir viðbyggingu fyrir sólskála til suðurs við Norðurhóp 13. Erindinu fylgja teikningar unnar af JeEs arkritektum dagsett 23.10.2016. Viðbyggingin er utan byggingarreits í deiliskipulagi. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra að vinna breytingu á deiliskipulagi fyrir raðhúsin Norðurhóp 13, 15, 17 og að breytingin verði grenndarkynnt fyrir eigendum Norðurhóps 7, 9, 11, 15, 17 og 32.
3. 1609032 - Skipulagsstofnun: HS Orka Matskyldufyrirspurn
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á matsskyldufyrirspurn vegna aukinar nýtingu jarðvarma í orkuveri HS í Svartsengi. Fyrirhuguð framkvæmd gerir ráð fyrir nýjum lögnum sem tengja holur sva25 og sva26 við orkuverið. Holurnar voru boraðar á árunum 2015/2016. Með framkvæmdinni er áætlað að aflgeta virkjunarinnar aukist um 6 MW. Fylgt verður eldri lagnaleiðum og ekkert rask verður á óröskuðu landi. Framkvæmdin, eins og henni er lýst í fyrirspurninni er í samræmi við deiliskipulag svæðisins og aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Skipulagsnefnd telur að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar gefi ekki tilefni til umhverfismats skv. lögum um umhverfismat framkvæmda nr. 106/2000. Skipulagsnefnd bendir á að sækja ber um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu lagnanna og ítrekar að mögulegur uppgröftur á jarðefni fari ekki inn á óraskað land.
4. 1610022 - Umferðaröryggi: Þrengingar við Austurhóp, athugasemd
Erindi frá íbúa við Austurhóp. Í erindinu er færanlegum þrengingum í Austurhópi sem settar hafa verið upp sl. sumur mótmælt. Ástæður mótmælanna eru að þær skapi hættu í snjó og hálku. Skipulagsnefnd bendir á að þrengingarnar eru settar upp að vori og teknar niður á hausti. Einnig bendir nefndin á að á gatnamótunum myndast blindhorn sem getur skapað hættu. Skipulagsnefnd telur að þrengingarnar auki umferðaröryggi á svæðinu og hafnar því erindinu.
5. 1610046 - Túngata 10 : umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Anton Narvaéz. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á þaki á húsi og bílskúr. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ ehf. dagsettar 16.09.2016 ásamt skriflegu samþykki eigenda við Túngötu 8, 12, Mánagötu 7. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um samþykki eigenda við Mánagötu 5.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.