Lausar stöđur hjá Slökkviliđi Grindavíkur

  • Fréttir
  • 23. september 2016

Slökkvilið Grindavíkur auglýsir stöður fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn og konur lausar til umsóknar.

Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

1. Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.

2. Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi.

3. Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.

4. Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun og þrekpróf.

Upplýsingar um starfið veitir slökkviliðsstjóri i síma 660-7311
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2016.
Umsóknareyðublöð má finna hér. Aðeins er nauðsynlegt að fylla út fyrri síðu. Umsóknum skal skila til slökkviliðsstjóra Hafnargötu 13 Grindavík eða í tölvupósti á slokkvilid@grindavik.is



Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!