1420. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 20. september 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Guðmundur L. Pálsson varamaður, Jóna Rut Jónsdóttir varamaður, Magnús Andri Hjaltason varam. áheyrnarfulltrúa, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Páll Jóhann Pálsson varamaður.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1609031 - Félagslegar íbúðir: Túngata
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi málinu eftir.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að gera tillögu að breytingu á úthlutunarreglum íbúða á Túngötu 15-17.
2. 1609063 - Melhólsnáma: ósk um leigutöku
Jón Gunnar Margeirsson fyrir hönd Jón og Margeir ehf. óskar eftir að fá að taka á leigu námu við Melhól.
Beiðninni er hafnað.
3. 1609060 - UMFG: Búnaður í íþróttahúsi
Knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir UMFG óska eftir því að Grindavíkurbær kaupi parket á dansgólf í íþróttahúsinu.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 250.000 kr.
4. 1602004 - Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 1.
Frestað.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45.