Kynningarfundir verða haldnir í safnaðarheimili Grindavíkurkirkju, kl. 20:00 mánudagana 19. og 26. september sem og 3 október. Vitnisburðir frá Vinum í bata gætu hjálpað þér að taka ákvörðun um hvort þú viljir vera hluti af þessu samfélagi.
Viltu einfalda líf þitt?
Viltu vinna í sjálfum/ri þér?
Viltu meiri gleði inní líf þitt?
Líður þér stundum illa, færð kvíða eða leiða og finnur fyrir reiði en veist ekki afhverju? eða viltu kannski bara bæta samband þitt við sjálfan þig og samskipti þín við aðra? 12 spora vinna er lífstíll sem hjálpar þér að takast á við daginn og verkefni lífsins á þinn hátt.
Allir velkomnir, skuldbindingalaust.