Frístundahandbókin - upplýsingarit um frístunda- og tómstundastarf í Grindavík veturinn 2016-2017, er farin í prentun og verður dreift í hús strax eftir helgi. Þar er að finna yfirlit yfir flest það frístundastarf sem boðið er upp á í bænum fyrir alla aldurshópa, allt frá einstökum deildum innan UMFG og upp í Hjónaklúbbinn, AA, félagsstarf eldri borgara og fleira. Hafa aldrei fleiri aðilar skráð sig í frístundahandbókina sem sýnir gróskuna í frístundastarfinu bænum okkar.
Grindavíkingar eru hvattir til þess að kynna sér Frístundahandbókina og taka þátt í skipulögðu frístundastarfi.
Jafnframt er hægt að nálgast hana hér að neðan.
Útgefandi er frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar.
Frístundahandbókin - Upplýsingarit um tómstundastarf í Grindavík veturinn 2016-2017