55. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í Gjánni, miðvikudaginn 7. september 2016 og hófst hann kl. 19:30.
Fundinn sátu:
Atli Geir Júlíusson aðalmaður, Sigurður Enoksson aðalmaður, Þórunn Alda Gylfadóttir formaður, Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir aðalmaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður, Bjarni Már Svavarsson fulltrúi UMFG og Þorsteinn Gunnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. 1606072 - Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram vinnuáætlun um gerð fjárhagsáætlunar 2017-2020.
2. 1609003 - UMFG: Þjónustukönnun 2016
Í ágúst var send út þjónustukönnun til allra foreldra/forráðamanna sem eiga börn á grunnskólaaldri um þjónustu UMFG er varðar barna- og unglingastarf. Alls bárust 118 svör, svarhlutfall var u.þ.b. 25%. Í heildina var niðurstaðan jákvæð fyrir UMFG. Meðal annars var spurt um upplýsingagjöf, samskipti við þjálfara, gæði æfinga og þjálfunar, fyrirkomulag keppnisferða, æfingatöflur, fréttaflutning á heimasíðu UMFG, hlutverk foreldraráða o.fl.
Þegar spurt var hversu ánægt eða óánægt ertu sem foreldri með starfsemi UMFG þegar á heildina er litið eru 85% sem eru mjög og frekar ánægðir, 12% svöruðu hvorki né og 4% voru frekar óánægðir. Þá segja 91% að framtíð UMFG sé björt.
Um 87% eru sammála því að samþætta betur stundatöflu skóla, íþrótta og annarra frístunda.
Helst bar á óánægju foreldra með samstarf deilda innan UMFG. Þá var beðið um ábendingar og hugmyndir hvernig best væri að efla starfsemi félagsins og bárust margar góðar hugmyndir fyrir aðalstjórn UMFG til þess að vinna með. Sneri það að samvinnu, bættri aðstöðu fyrir einstaka deildir, æfingatöflur o.fl.
Einnig var sérstaklega spurt um fyrirkomulag æfingagjalda hjá UMFG, þ.e. að innheimta eitt æfingagjald pr. barn óháð fjölda íþróttagreina sem barnið stundar. Um 85% finnst fyrirkomulagið mjög gott og tæp 11% nokkuð gott, samtals gerir þetta um 96% sem er mjög afgerandi niðurstaða.
Könnunin verður kynnt frekar innan UMFG og Grindavíkurbæjar og einnig birt á heimasíðu UMFG og Grindavíkurbæjar á næstunni.
3. 1607024 - Björgunarsveitin Þorbjörn: Ársskýrsla 2015
Ársskýrslan lögð fram.
4. 1601013 - Frístunda- og menningarsvið: Eftirfylgni samninga 2015
Siðareglur Hestamannafélagsins Brimfaxa lagðar fram. UMFG og Golfklúbbur Grindavíkur hafa áður lagt sínar siðareglur fram. Áfram verður unnið samkvæmt samstarfssamningi Grindavíkurbæjar, UMFG, GG og Brimfaxa.
5. 1608044 - Grindavíkurkirkja: Skýrsla um æskulýðsstarf haust 2015 og vor 2016
Ársskýrslan lögð fram.
6. 1601063 - Hátíðarhöld: 17. júní 2016
Minnisblað sviðsstjóra um hátíðarhöldin í sumar sem gengu vel.
7. 1601028 - Sjóarinn síkáti: Verkefnisáætlun 2016
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um Sjóarann síkáta og niðurstöður rýnifundar hagsmunaaðila lagðar fram en bæjarhátíðin fagnaði 20 ára afmæli í sumar. Fram kemur í minnisblaðinu að heilt yfir gekk Sjóarinn síkáti mjög vel í ár bæði hvað varðar skipulag og hversu góður bragur var á hátíðinni. Þá hafa aðsóknartölur aldrei verið eins háar og voru gestir til mikillar fyrirmyndar. Þá er rétt að ítreka ómetanlegt framlag Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar til hátíðarinnar.
Þá segir: "En hvert viljum við stefna með bæjarhátíðina okkar? Sífellt stækkandi hátíð kallar á enn öflugra skipulag, meiri undirbúning, meiri vinnu, betri umgjörð, meiri mannskap og meira fjármagn. Þá er nauðsynlegt að gera lagfæringar á hátíðarsvæði fyrir neðan Kviku. Kominn er tími til að endurskoða skipulagið á hátíðinni og fá fleiri að borðinu".
Lagðar eru fram tillögur í 7 liðum um breyttar áherslur að hátíðinni. Samþykkt að helstu hagsmunaaðilar verði boðaðir á undirbúningsfund með bæjarráði í janúar til þess að fara yfir tillögurnar og setja á stofn starfshóp sem verði sviðsstjóra til halds og trausts við undirbúning hátíðarinnar.
8. 1603095 - Leikjanámskeið 2016: Verkefnisáætlun
Skýrsla um starfsemi leikjanámskeiðsins og skoðanakönnun foreldra/forráðamanna lögð fram. Gerðar voru talsverðar breytingar á skipulaginu í sumar sem gekk í heildina mjög vel. Farið yfir hvað gekk vel og hvað mætti betur fara og tillögur til endurbóta fyrir næsta sumar.
9. 1608054 - Félagsmiðstöðin Þruman: Verkefnisáætlun 2016-2017
Verkefnisáætlun fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar lögð fram. Þruman fagnar 30 ára starfsafmæli í haust. Búið er að ráða starfsfólk. Dagskráin er unnin í samvinnu við nemenda- og Þrumuráð.
10. 1608053 - Heilsu- og forvarnarvika: 3.-9. okt. 2016
Dagana 3.-9. okt. (mánudag til sunnudags) verður heilsu- og forvarnarvika í Grindavík. Hún kemur í stað Hreyfivikunnar sem nú hefur verið færð fram til vorsins. Tilgangur heilsu- og forvarnarvikunnar er að hvetja bæjarbúa til að huga að heilsu sinni með markvissri hreyfingu, sýna fram á forvarnargildi hreyfingar og heilbrigðs lífernis og gefa aðilum sem stunda heilsueflingu færi á að kynna starfsemi sína. Markmiðinu skal m.a. ná með samstarfi fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, íþróttafélaga og einstaklinga sem starfa á þessu sviði.
Biðlað er til allra stofnana, fyrirtækja, félagasamtaka, íþróttafélaga og annarra sem vilja stuðla að bættri heilsu og forvörnum í Grindavík, að taka þátt með einum eða öðrum hætti. Þetta getur verið allt frá gönguferðum, (opnum) æfingum, fyrirlestrum og kynningum upp í heilsufarsmælingar, heilsufæði og viðburði. Þá er allar góðar hugmyndir sem tengjast heilsu og forvörnum vel þegnar.
Gefin verður út dagskrárblað sem dreift verður í öll hús og á samfélagsmiðlum. Þeir sem ætla að standa fyrir viðburðum og uppákomum í Heilsu- og forvarnarvikunni eru hvattir til þess að senda á thorsteinng@grindavik.is í síðasta lagi fimmtudaginn 22. september n.k.
11. 1603076 - Vinnuskólinn: Starfsáætlun 2016
Skýrsla um starfsemi Vinnuskólann í sumar, niðurstaða rýnifundar og könnun á meðal foreldra/forráðmanna í sumar lögð fram. Alls voru 86 nemendur í Vinnuskóla Grindavíkur 2016 sem skiptist þannig:
8. bekkur 38, 9. bekkur 18 , 10. bekkur 15, 11. bekkur og eldri 15. Þar sem talsvert færri yngri nemendur sóttu um var ákveðið að ráða nokkuð af eldri nemendur (17+) sem sóttust eftir að komast í vinnuskólann.
Gerðar voru nokkrar breytingar á vinnufyrirkomulagi nemenda. Starfsemi Vinnuskólans tókst með ágætum. Í skýrslunni koma fram ýmsar hugmyndir til að efla starfið enn frekar, m.a. að breyta vinnuskólanum í Starfsskóla og auka fræðslu og val nemenda.
12. 1608124 - Codland: Skýrsla um Codland vinnuskólann 2016
Skýrsla um starfsemi Codland vinnuskólans lögð fram en hún tókst mjög vel að vanda.
13. 1609004 - Minjastofnun Íslands: Skemmdir á gamla Grindavíkurveginum.
Lagt fram afrit af bréfi Minjastofnunar Íslands til Vegagerðarinnar vegna skemmda á gamla Grindavíkurveginum en framkvæmdir standa nú yfir við gatnamót Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar í Grindavíkurbæ. Gamli Grindavíkurvegurinn var lagður á árunum 1914-1918. Þær framkvæmdir sem nú standa yfir hafa raskað gamla Grindavíkurveginum við gatnamótin.
Nefndin tekur undir þær alvarlegu athugasemdir sem Minjastofnun gerir við þær skemmdir sem unnar hafa verið á gamla Grindavíkurveginum.
14. 1607005 - Umsókn í afrekssjóð: Hrund Skúladóttir, EM U16 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
15. 1607003 - Umsókn í afrekssjóð: Hrund Skúladóttir, NM U16 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
16. 1607001 - Umsókn í afrekssjóð: Ingvi Þór Guðmundsson, EM U18 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
17. 1607004 - Umsókn í afrekssjóð: Ingvi Þór Guðmundsson, NM U18 í körfbolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
18. 1607002 - Umsókn í afrekssjóð: Jón Axel Guðmundsson, EM U20 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
19. 1607009 - Umsókn í afrekssjóð: Ólöf Rún Óladóttir, NM U15 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
20. 1607010 - Umsókn í afrekssjóð: Vigdís María Þórhallsdóttir, NM U15 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
21. 1607006 - Umsókn í afrekssjóð: Viktoría Líf Steinþórsdóttir, EM U16 í körfubolta
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
22. 1501142 - Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram
23. 1602175 - Samsuð: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:30 .