Bæjarmálafundur Framsóknarfélags Grindavíkur verður haldinn kl 20:00 í sal félagsins að Víkurbraut 27. Að venju verður til umræðu dagskrá bæjarstjórnarfundarins á morgun. Einnig verður fjallað um nefndarstörf og almenn umræða um bæjarmálin.
Ávallt heitt á könnunni og allir velkomnir.
Framsóknarfélag Grindavíkur