Nú standa yfir umtalsverðar framkvæmdir og endurbætur á gatnamótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar, sem margir þekkja sennilega betur sem Bláalónsveginn. Umferð um þessi gatnamót hefur aukist mikið síðastliðin ár og hefur Grindavíkurbær þrýst mjög á Vegagerðina um umbætur á þessum fjölförnu gatnamótum og því mikið fagnaðarefni að framkvæmdir skuli vera komnar á fullt.
Með breytingunum verða sér beygjuakgreinar inná Norðurljósaveginn úr báðum áttum þannig að umferð um Grindavíkurveg á að ganga að mestu óhindruð í báðar áttir. Þá verða gatnamótin einnig lýst upp og vegaxlir breikkaðar umtalsvert í báðar áttir til þess að tryggja eðlilegt flæði umferðar. Markmiðið með þessum framkvæmdum er að auka umferðaröryggi vegfarenda og verður vonandi um mikla bragabót í umferðarmálum að ræða.
Engar steyptar umferðareyjur verða settar upp á gatnamótunum en umferð verður stýrt með skiltum og máluðunum veglínum. Eins og sést á kortinu hér að neðan mun umferð af Norðurljósavegi í norðurátt ekki lengur þvera umferð úr suðri þó ökumenn þurfi enn að sýna aðgát þegar ekið er í átt til Grindavíkur og bílar eru að beygja þvert yfir gatnamótin. Götulýsingin mun þó væntanlega létta mörgum lífið og vísa óöruggum ökumönnum leiðina út á Grindavíkurveg á skynsamlegan hátt.