1417. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 23. ágúst 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Magnús Andri Hjaltason varam. áheyrnarfulltrúa, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1608052 - Kostnaður vegna námsgagna í grunnskóla.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að skoða möguleika á að verða við tilmælum um frían grunnskóla þannig að sveitarfélagið leggi út fyrir kostnaði við ritföng og önnur gögn fyrir nemendur og stuðli þannig að enn meiri jöfnuði meðal nemenda í Grindavík. Með hagstæðum innkaupum og samnýtingu má minnka heildarkostnað við kaupin þegar upp er staðið.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir skólaárið 2017-2018.
2. 1501144 - Tjaldsvæði: útboðsgögn
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Minnisblað bæjarstjóra og sviðsstjóra lagt fram og rætt, ásamt drögum að útboðsgögnum fyrir tjaldsvæðið. Reksturinn var boðinn út í árslok 2014, en tilboð voru ekki ásættanleg og var öllum hafnað.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar í umhverfis-og ferðamálanefnd.
3. 1605085 - Íþróttamiðstöð: aukin sumaropnun um helgar
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Minnisblað forstöðumanns íþróttamannvirkja varðandi sumaropnun lagt fram.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umsagnar í frístunda- og menningarnefnd.
4. 1606072 - Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti vinnuáætlun fjárhagsáæltunar 2017-2020 og drög að áætlun staðgreiðslu og skatttekna fyrir árið 2017.
5. 1601086 - Fundargerðir: Samtök sjávarútvegssveitarfélaga 2016
Fundargerðir 27. og 28. funda lagðar fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.