Blái herinn mćtir til Grindavíkur á mánudaginn

  • Fréttir
  • 19. ágúst 2016

Tómas Knútsson og Blái herinn hans ætla að mæta til Grindavíkur á mánudaginn og taka hressilega til hendinni. Með í för verða 25 erlendir sjálfboðaliðar sem tengjast Rotary-klúbbum á einn eða annan hátt. Herinn mun safnast saman við Eyjabakka og síðan tína rusl í fjörunni við Hópsnesið og í austurátt eins og tími vinnst til fram að hádegi. Þeir Grindvíkingar sem eiga þess kost að leggja hönd á plóg eru hvattir til að mæta og taka til hendinni. Margar hendur vinna létt verk og munar um hvern og einn í stóru verkefni eins og þessu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir