Grindavíkurbær auglýsir lausa stöðu sérfræðings í 80% starfshlutfalli á félagsþjónustu- og fræðslusviði
Helstu verkefni og ábyrgð
Könnun og meðferð barnaverndarmála, auk ýmissa verkefna hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun er nýtist í starfi
Reynsla í vinnslu barnaverndarmála
Þekking og reynsla af PMTO er æskileg
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 31. ágúst 2016 á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða á netfangið nmj@grindavik.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi stéttafélags viðkomandi og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri (netfang: nmj@grindavik.is - sími: 420-1100)